Prentanlega ísbúðin er frábær viðbót í hlutverkaleiki. Þú færð aðgang að fjölmörgum merkingum og spjöldum sem má nota til að setja upp sína eigin ísbúð heima.
Haustið 2020 ákvað ég að bjóða öllum börnum sem lenda í sóttkví eða einangrum smá glaðning til að stytta þeim stundir og gera mitt til að létta undir með fjölskyldum. Ég ákvað að það yrði alltaf í boði eins lengi og við þyrftum að kljást við heimsfaraldur.
Nú þegar öllum takmörkunum hefur verið létt og tilveran stefnir í eðlileg horf finnst mér ekki rétt að byrja að setja verð á ísbúðina. Hún verður því áfram gjaldfrjáls fyrir alla sem vilja nýta sér hana.
Njótið vel og gleðilegan leik!